I. KAFLI
Skattskyldir aðilar.
(1) Skylda til að greiða tekjuskatt af öllum tekjum sínum, hvar sem þeirra er aflað, [---]1) hvílir á þessum mönnum:
-
Þeim sem heimilisfastir eru hér á landi.
-
Þeim sem heimilisfastir hafa verið hér á landi en flutt úr landi og fellt hafa niður heimilisfesti sitt hér, nema þeir sanni að þeir séu skattskyldir í öðru ríki á sama hátt og menn heimilisfastir þar og hafi fullnægt þeim skattskyldum sínum. Skattskylda þessi gildir þó aðeins í þrjú ár frá næstu áramótum eftir brottflutningsdag.
-
Þeim sem dvelja hér á landi lengur en samtals 183 daga á sérhverju 12 mánaða tímabili, þar með talin eðlileg fjarvera héðan af landi vegna orlofs og þess háttar.
-
Þeim sem eigi falla undir ákvæði 1.–3. tölul. þessarar greinar en starfa samtals lengur en 183 daga á sérhverju 12 mánaða tímabili, þar með talin eðlileg fjarvera frá starfi vegna orlofs og þess háttar, um borð í loftfari eða skipi sem skráð er hér á landi.
(2) Ríkisskattstjóri hefur úrskurðarvald um hverjir skuli teljast heimilisfastir hér á landi samkvæmt þessari grein. Við ákvörðun á heimilisfesti skal miðað við reglur laga um lögheimili*1), eftir því sem við á. Úrskurði ríkisskattstjóra má skjóta til dómstóla að stefndum ríkisskattstjóra vegna fjármálaráðherra.
1)Sbr. 1. gr. laga nr. 129/2004. *1)Sjá lög nr. 21/1990.
(1) [Skylda til að greiða tekjuskatt af öllum tekjum sínum, hvar sem þeirra er aflað, [---]1) hvílir á eftirtöldum lögaðilum sem heimilisfastir eru hér á landi]2):
-
[Skráðum hlutafélögum og einkahlutafélögum, svo og samlagshlutafélögum, enda sé þess óskað við skráningu að samlagshlutafélagið sé sjálfstæður skattaðili. Hjón ein sér eða með ófjárráða börnum sínum geta ekki myndað samlagshlutafélag er sé sjálfstæður skattaðili.]2) 3)
-
Gagnkvæmum vátryggingar- og ábyrgðarfélögum, kaupfélögum, öðrum samvinnufélögum og samvinnufélagasamböndum [---]2).
-
Samlagsfélögum og sameignarfélögum með ótakmarkaðri ábyrgð félagsaðila, enda sé félagið skráð í firmaskrá hér á landi, þess óskað við skráningu að félagið sé sjálfstæður skattaðili og við skráningu afhentur félagssamningur þar sem getið sé eignarhlutfalla eigenda, innborgaðs stofnfjár svo og hvernig félagsslitum skuli háttað. Senda skal [ríkisskattstjóra]5) vottorð um skráningu og staðfest eftirrit af félagssamningi með fyrsta skattframtali þessara félaga. Hjón ein sér eða með ófjárráða börnum sínum geta ekki myndað samlagsfélag eða sameignarfélag er sé sjálfstæður skattaðili.
-
Samlögum og samtökum sem hafa það að meginmarkmiði að annast vinnslu eða sölu á framleiðsluvörum félagsaðila sinna, innkaup á rekstrarvörum eða þjónustu í beinum tengslum við atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi þeirra, enda séu þau skráð í firmaskrá hér á landi og þess getið við skráningu að þau séu sjálfstæðir skattaðilar. Við skráningu skal afhentur félagssamningur þar sem getið sé eignaraðildar, innborgaðs stofnfjár svo og hvernig félagsslitum skuli háttað. Senda skal [ríkisskattstjóra]5) vottorð um skráningu og staðfest eftirrit af félagssamningi með fyrsta skattframtali þessara félaga.
-
Öðrum félögum, sjóðum og stofnunum, þar með töldum sjálfseignarstofnunum, sem hér eiga heimili, sbr. þó 5. [og 6.]3) tölul. 4. gr., svo og dánarbúum og þrotabúum.
[---]2)
(2) [Lögaðili skv. 1. mgr. telst eiga hér heimili ef hann er skráður hér á landi, telur heimili sitt hér á landi samkvæmt samþykktum sínum eða ef raunveruleg framkvæmdastjórn hans er hér á landi.]2) [Ríkisskattstjóri hefur úrskurðarvald um hvaða lögaðilar skuli teljast heimilisfastir hér á landi samkvæmt þessari grein. Úrskurði ríkisskattstjóra má skjóta til dómstóla að stefndum ríkisskattstjóra vegna fjármálaráðherra.]4)
(3) Sé þess ekki óskað við skráningu samlagsfélags, [samlagshlutafélags]3) eða sameignarfélags að félagið sé sjálfstæður skattaðili eða fullnægi lögaðili skv. 1.-4. tölul. þessarar greinar ekki skilyrðum til að teljast sjálfstæður skattaðili skal tekjum hans og eignum skipt milli félagsaðila í samræmi við félagssamning þeirra og þær skattlagðar með öðrum eignum og tekjum félagsaðilanna. Kveði félagssamningur eigi á um skiptingu tekna og eigna skal þeim skipt milli félagsaðila eftir eignarhlutföllum. Ef eignarhlutföll eru ekki fyrir hendi eða þau óljós skal tekjum og eignum skipt jafnt milli félagsaðila.
1)Sbr. 2. gr. laga nr. 129/2004. 2)Sbr. 1. gr. laga nr. 77/2005. 3)Sbr. 1. gr. laga nr. 77/2006. 4)Sbr. 1. gr. laga nr. 166/2007. 5)Sbr. 1. gr. laga nr. 136/2009.
Takmarkaða skattskyldu bera þessir aðilar, enda falli þeir ekki undir ákvæði 1. eða 2. gr. eða séu undanþegnir skattskyldu skv. 4. gr.:
-
Allir menn sem dvelja hér á landi og njóta launa fyrir störf sín hér skulu greiða tekjuskatt af þeim launum. Hér með teljast þeir menn sem atvinnu stunda hér á landi, eða um borð í loftfari eða skipi sem skráð er hér á landi, þar með talið á grundvelli samninga um útleigu á vinnuafli, þótt dvöl þeirra eða starf vari 183 daga samtals eða skemur á sérhverju 12 mánaða tímabili.
-
Allir menn sem njóta frá íslenskum aðilum launa fyrir störf, þar með talin stjórnar-, endurskoðenda- eða nefndarstörf, eftirlauna, biðlauna, lífeyris, styrkja eða hliðstæðra greiðslna skulu greiða tekjuskatt af þeim greiðslum.
-
Allir aðilar sem fá greiðslu fyrir þjónustu eða starfsemi innta af hendi hér á landi skulu greiða tekjuskatt af þeim tekjum.
-
Allir aðilar sem reka hér á landi fasta starfsstöð, taka þátt í rekstri fastrar starfsstöðvar eða njóta hluta af ágóða slíkrar starfsstöðvar skulu greiða tekjuskatt af þeim tekjum.
-
Allir aðilar sem eiga fasteign hér á landi eða hafa rétt yfir fasteign hér á landi er þeir hafa af tekjur eða teljast hafa af tekjur þar með talinn söluhagnað, samkvæmt ákvæðum laga þessara skulu greiða tekjuskatt af þeim tekjum.
-
Allir aðilar sem hafa hér á landi tekjur af leigu, afnotum eða rétti til hagnýtingar á lausafé, einkaleyfum, hvers konar réttindum eða sérþekkingu, svo og af söluhagnaði vegna slíkra eigna, skulu greiða tekjuskatt af þeim tekjum. [Ákvæði þetta tekur þó ekki til tekna af leigu loftfara og skipa sem notuð eru til flutninga á alþjóðaleiðum.]2)
-
Allir aðilar sem hafa tekjur, þar með talinn söluhagnað, af íslenskum hlutabréfum, stofnbréfum eða öðrum réttindum til hlutdeildar í hagnaði eða af rekstri íslenskra fyrirtækja skulu greiða tekjuskatt af þeim tekjum.
-
[Allir aðilar sem hafa vaxtatekjur hér á landi af bankainnstæðum, verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum, skuldabréfum eða öðrum kröfum og fjármálagerningum, sbr. 3. tölul. C-liðar 7. gr., skulu greiða tekjuskatt af þeim tekjum. Ákvæði þetta gildir þó hvorki um vexti sem greiddir eru af Seðlabanka Íslands [í eigin nafni]4) né þá vexti sem greiðast erlendum ríkjum, alþjóðastofnunum eða öðrum opinberum aðilum sem undanþegnir eru skattskyldu í heimilisfestarríki sínu. Ákvæðið á ekki við kveði tvísköttunarsamningur sem Ísland hefur gert við erlent ríki á um að ekki skuli haldið eftir afdráttarskatti af vöxtum. Fjármálaráðherra er heimilt að setja reglugerð er kveður nánar á um framkvæmd þessa ákvæðis.]3)
-
Erlendir sendiherrar, sendiræðismenn og erlendir starfsmenn sendisveita annarra ríkja hér á landi og aðrir, sem úrlendisréttar njóta, skulu greiða tekjuskatt af tekjum sem þeir njóta frá innlendum aðilum og af tekjum sem um er rætt í [4.-8. tölul.]3)*1)
[---]1)
1)Sbr. 3. gr. laga nr. 129/2004. 2)Sbr. 1. gr. laga nr. 174/2006. 3)Sbr. 6. gr. laga nr. 70/2009 4) Sbr. 1. gr. laga nr. 128/2009. *1)Var áður 8. tl. Breytt með lögum nr. 70/2009.
Aðilar undanþegnir skattskyldu.
4. gr.
[Þessir aðilar greiða ekki tekjuskatt]1):
-
Ríkissjóður, ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki sem hann rekur og ber ótakmarkaða ábyrgð á svo og Fiskifélag Íslands.
-
Sýslu- og sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir sem þau reka og bera ótakmarkaða ábyrgð á.
-
Erlend ríki og alþjóðastofnanir, af fasteignum sem þær nota vegna viðurkenndrar starfsemi sinnar hér á landi.
-
Þeir lögaðilar sem um ræðir í 2. gr. og hér eiga heimili, ef þeir verja hagnaði sínum einungis til almenningsheilla og hafa það að einasta markmiði samkvæmt samþykktum sínum.
-
Félög, sjóðir og stofnanir, sbr. 5. tölul. 2. gr., sem ekki reka atvinnu.
-
[Lífeyrissjóðir sem starfa skv. III. kafla laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða]2) [og starfstengdir eftirlaunasjóðir sem heimild hafa til að taka á móti iðgjöldum til myndunar eftirlaunaréttar]3) [samkvæmt lögum nr. 78/2007, um starfstengda eftirlaunasjóði.]4)
-
Aðilar sem undanþegnir eru skattskyldu með sérstökum lögum.*1)
1)Sbr. 4. gr. laga nr. 129/2004. 2)Sbr. 2. gr. laga nr. 77/2006. 3)Sbr. 1. gr. laga nr. 76/2007. Ákvæðið kom til framkvæmda við staðgreiðslu opinberra gjalda frá og með 1. júlí 2007 og við álagningu tekjuskatts á árinu 2008. 4)Sbr. 2. gr. laga nr. 166/2007. *1)Tölumerking breyttist í samræmi við breytingar með lögum nr. 77/2006.
Skattskylda hjóna og barna.
5. gr.
Hjón eru sjálfstæðir skattaðilar hvort um sig og skal þeim ákveðinn tekjuskattur [---]1) hvoru í sínu lagi.
1)Sbr. 5. gr. laga nr. 129/2004.
Barn, sem er innan 16 ára aldurs á tekjuárinu, er ekki sjálfstæður skattaðili sé það á framfæri foreldra sinna (þar með taldir kjörforeldrar, stjúpforeldrar, fósturforeldrar). Þó skulu þær tekjur barns sem um ræðir í 1. tölul. A-liðar 7. gr. skattlagðar sérstaklega.